Skilmálar

Almennt

Það er okkar markmið að viðskipti þín við Alvöru form séu ánægjuleg. Til að stuðla að því mælum við með því að þú kynnir þér skilmála Alvöru form. Það mun fyrirbyggja allan misskilning og stuðla að góðum samskiptum í framtíðinni.

Þjónusta Alvöru form

Alvöru form veitir þjónustu á sviði upplýsinga og aðgangs að vefsvæði fyrir einstaklinga. Um er að ræða aðgang að hugbúnaði sem heldur utan um æfingarplön, matardagbækur, samskipti við þjálfara, fræðsluefni og persónuupplýsingar notenda. Þjónustu þessari er ætlað að veita notendum aðhald og aðstoða þá við að ná bættum árangri og betri heilsu.

Réttur til að hætta við pantanir

alvuruform.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Alvöru form áskilur sér rétt til að segja upp áskrift án endurgreiðslu ef samband milli kúnna og þjálfara er ekki að ganga.

Notendur

Með hugtakinu „notendur“ í hvaða falli sem er, fleirtölu eða eintölu, er átt við þá sem nýtir sér þjónustu Alvöru form. Allir þeir sem nýta sér þjónustu Alvöru form verða að lesa skilmála þessa og samþykkja við skráningu á vefsvæði. Notendur fá aðgang að innri vef Alvöru form og bera þeir ábyrgð á að tryggja leynd aðgangsupplýsinga sinna, þ.e. notendanafns og lykilorðs. Notendum er óheimilt að deila aðgangsupplýsingum með öðrum aðilum eða veita öðrum aðgang að innri vef Alvöru form. Alvöru form ber enga ábyrgð á hvers kyns tjóni, beinu eða óbeinu, sem kann að hljótast af því að aðrir aðilar komist yfir aðgangsupplýsingar notenda. Verði notandi þess var að óviðkomandi aðili hefur komist yfir aðgangsupplýsingar hans að innra vef Alvöru form, þá skal hann samstundis láta Alvöru form vita. Notandi ber fulla ábyrgð á því að upplýsa Alvöru form um heilsukvilla, ofnæmi og annað sem skipt getur máli við nýtingu á þjónstunni. Notendur sem fá aðgang að þjónustu Alvöru form bera fulla ábyrgð á að greiða áskrift að fullu þó svo að nýting hafi ekki verið á þjónustu enda er það alfarið á notenda að notfæra sér þjónustu hjá sínum þjálfara.

Verð og áskrift

Verð fyrir þjónustu Alvöru form er í samræmi við gildandi verðskrá þjálfara sem er gefin upp frá þjálfara. Alvöru form áskilur sér rétt til að breyta verðum. Þegar þú hefur samþykkt skilmála og skráð þig í Fjarþjálfun er kominn á samningur milli Alvöru form og notanda. Binditími samnings er samkvæmt völdum pakka: 1, 3, 6 eða 9 mánuðir. Samningar framlengjast ekki sjálfkrafa að binditíma loknum nema þjálfari hafi sagt annað. Notendum er þó ávallt frjálst að óska eftir framlengingu. Greiði notandi ekki innan 10 daga frá gjalddaga lokast á aðgang hans að innri vef Alvöru form. Það er á ábyrgð notanda að réttar greiðsluupplýsingar séu gefnar við skráningu. Mánaðargjaldið er samkvæmt völdum pakka og reikningur er sendur á kennitölu notanda.

Uppsögn samnings

Þegar skilmálar hafa verið samþykktir er kominn á samningur um kaup á þjónustu Alvöru form þá er ekki hægt að segja upp Fjarþjálfun/þjónustu. Á móti framlengist binditími ekki sjálfkrafa nema þjálfari hafi gefið aðila upp annað. Fari notandi ekki eftir skilmálum þessum þá áskilur Alvöru form sér rétt til að segja samningi um þjónustu upp án nokkurs fyrirvara eða endurgreiðslna.

Takmörkun ábyrgðar

Alvöru form ber ekki ábyrgð á:

Meiðslum, slysum, veikindum, mistökum eða öðru sem kann að leiða til skaðabótaskyldu eða refsiskyldu. Notandi nýtir þjónustu Alvöru form á eigin ábyrgð.

Óþægindum eða tjóni, beinu eða óbeinu, vegna bilana í tölvu- eða hugbúnaðarkerfum.

Tjóni eða óþægindum sem kunna að hljótast af því hvers konar misnotkun eða mistökum við meðferð upplýsinga sem fara á milli þjónustuveitanda og notanda. Hér getur t.d. átt við ef þriðji aðili brýst inn í tölvukerfi þjónustuveitanda Alvöru form eða tölvukerfi Alvöru form/notenda og stelur eða misnotar upplýsingar á annan hátt.

Tjóni eða óþægindum vegna annara atvika sem talin eru óviðráðanleg (e. force majeure).

Neinum upplýsingum eða gögnum sem notandi sendir til Alvöru form í gegnum innri vefinn/appið. Alvöru form skuldbindur sig til að vernda upplýsingar og gögn notenda eftir fremsta megni.

Höfunda- og hugverkaréttur

Innihald vefsiðurnnar alvuruform.is, að meðtöldu öllu efni og innihaldi innra nets Alvöru form, er varið samkvæmt höfundaréttar- og vörumerkjalögum á Íslandi og þeim lögum sem kunna að gilda á öðrum stöðum. Allt efni og innihald alvuruform.is er eign Alvöru form. Með því að gerast notandi er aðila veittur aðgangur að efni og innihaldi Alvöru form og honum heimilað að nota það í samræmi við skilmála þessa. Notanda er með öllu óheimilt að afrita efni og innihald sem aðilar fá hjá Alvöru form, nema til eigin nota. Með efni og innihaldi alvuruform.is er átt við allt sem er þar að staðaldri ásamt upplýsingum á innri vef/appið, auk efnis sem notanda kann að vera sent í tengslum við persónulegar ráðleggingar með æfingar eða annað. Öll dreifing, afritun eða endurútgáfa á efni og/eða innihaldi Alvöru form er óheimil.

Persónuvernd

Hluti af því að nýta sér þjónustu Alvöru form felst í því að veita okkur upplýsingar um þig. Þær upplýsingar sem þú veitir kunna að vera persónuupplýsingar og viðkvæmar persónuupplýsingar. Ástæðan fyrir því af hverju þú veitir okkur þessar upplýsingar er einföld, með því getum við veitt þér mun betri þjónustu. Það er alltaf undir þig komið hversu miklar upplýsingar þú kýst að veita okkur.

Alvöru form heitir fullum trúnaði um þær upplýsingar sem þú veitir okkur. Við munum gæta þinna upplýsinga eftir bestu getu. Um meðferð persónuupplýsinga við viðskiptin fer samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Þær upplýsingar sem við kunnum að safna um þig og óska eftir að þú veitir okkur eru:

Nafn, heimilsfang og aðrar tengiliðaupplýsingar.

Kennitala.

Samskipti þín við okkur.

Æfingaplön sem þú færð aðgang og önnur sambærileg gögn.

Mælingar.

Myndir.

Persónulegar upplýsingar um þig og þitt nánasta umhverfi, vinnu fjölskyldu og fleira.

Heilsufarsupplýsingar.

Við munum hvorki safna né vinna persónulegar upplýsingar um þig í öðrum tilgangi en þeim að veita þér góða þjónustu. Þú getur hvenær sem er afturkallað samþykki þitt fyrir veitingu persónuupplýsinga og eftir atvikum fengið þeim eytt.

Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) þegar keypt er þjónusta

Kaupandi greiðir mánaðargjald samkvæmt völdum pakka. Reikningur er sendur á kennitölu kaupanda. Ekki er hægt að fara fram á endurgreiðslu eftir að greiðsla fyrir Fjarþjálfun hefur verið innt af hendi.

Endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur ekki rétt á endurgreiðslu eftir að búið er að greiða áskriftargjald eða stakt námskeiðsgjald. Endurgreiðsluréttur stofnast ekki ef þátttakandi hefur ekki nýtt sér vöruna eða þjónustuna sem keypt var.

Breytingar

Alvöru form áskilur sér rétt til að gera breytingar á skilmálum þessum og þjónustu án fyrirvara.

Ágreiningur

Rísi ágreiningur um viðskiptin sem verður ekki leystur með öðrum hætti en aðkomu dómstóla skal mál rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar

Ef þú þarft nánari upplýsingar eða vilt koma að ábendingum eða kvörtunum, sendu okkur þá fyrirspurn á saethor@alvuruform.is og við svörum þér eins fljótt og auðið er.

Gildistími

Skilmálar þessir gilda frá 7. Apríl 2025.

← Aftur á forsíðu